Um Hugdrif
Hugdrif er sjálfstæð ráðgjafarstofa í heildarskipulagi og lausnaarkitektúr, stofnuð og rekin af Pétri Snæland.
Ég hef starfað í 25 ár við viðskiptahugbúnað fyrir stór fyrirtæki. Það sem skiptir máli er ekki árafjöldinn heldur breiddin: ólíkar atvinnugreinar, ólíkar vörur, ólík verkefni og sömu ákvarðanirnar séðar úr ólíkum hlutverkum.
Sem vöruarkitekt byggði ég hugbúnaðarvörur sem fjöldi fyrirtækja og stofnana reiðir sig á, þar sem ekki má leysa vanda eins viðskiptavinar á kostnað hinna. Í verkefnum þurfti ég að láta vegvísi, þróunaráætlun og útgáfur standast raunverulegar tímalínur viðskiptavina.
Þessi uppsafnaða reynsla og yfirsýn skiptir mestu. Ég hef séð sömu áskoranirnar og ákvarðanirnar frá hlið söluaðilans, innleiðingaraðilans og viðskiptavinarins, oft í sama verkefninu. Þessi vegferð kennir eina lexíu umfram aðrar: heildarmyndin verður að vera skýr áður en útfærslan hefst.
Sé byrjað að útfæra áður en heildarmynd liggur fyrir festast í kerfunum ákvarðanir sem enginn tók formlega. Eftir því sem lengra líður verður bæði seinlegra og dýrara að leiðrétta stefnuna. Þess vegna byrjar vinnan á viðskiptagetu og ferlum frekar en vali úr vörulista.
Hugdrif sérhæfir sig í arkitektúr og hönnun. Hugdrif selur engin hugbúnaðarleyfi og tekur ekki að sér heildarábyrgð á innleiðingu eða rekstri þeirra kerfa sem ráðlagt er um.
Ég get tekið að mér útfærslu einstakra hluta lausnar þegar það hjálpar.
Hugdrif starfar frá Íslandi, jafnt á íslensku og ensku.
Svona vinn ég
Greining á undan hönnun
Ég legg ekki til lausn áður en ég skil vandann. Fyrsta samtalið snýst um að finna út hver spurningin er í raun, sem er ekki endilega ljóst í byrjun.
Kortleggja stöðuna
Ég fer yfir fyrirliggjandi skjöl sem upphafspunkt, ræði við fólkið sem þekkir til málsins og dreg upp skýra mynd af viðfangsefninu.
Taka afstöðu
Þið fáið tillögu um hvað eigi að gera, ekki bara yfirlit yfir kostina. Rökin fylgja, og líka þeir kostir sem ekki er mælt með.
Gera ykkur sjálfbjarga
Lýsingar, ákvarðanir og röksemdafærslur skjalfestar svo ykkar fólk geti unnið sjálfstætt.
Hvar reynslan liggur
- Viðmiðunararkitektúr og lýsilíkön sem skýra samhengi rekstrar, upplýsinga og lausna.
- Samtengt gagnaumhverfi fyrir vöruupplýsingar: hugtaka-, rökræn og útfærð gagnalíkön
- Hönnun og stýring lausnar sem styður virðisdrifna ferlastjórnun í D365
- Mikil reynsla af BPMN og UML bæði við nýsmíði og til að draga upp skýra mynd af uppsöfnuðum lausnum
- Mótun gervigreindarstefnu og skilgreining tengdra verkefna
- Hönnun, smíði og rekstur erindreka með Copilot Studio, tengdum fyrirtækjagögnum og ERP með MCP þjónum
- Notkun virðisdrifinnar ferlagreiningar til að meta hvar erindrekar eða önnur sjálfvirknivæðing á best við
- Erindrekastjórnun: hlutverk, heimildir og ábyrgð erindreka skilgreind með skipuriti
- Hönnun og smíði lausna sem eru enn á markaði og í þróun jafnvel áratugum síðar.
- Endurhugsun á arkitektúr iðnaðarlausnar til að styðja gervigreind og erindreka
- Eignarhald á vegvísi og verkefnalista, frá hugmynd til virðis, með Azure DevOps
- Þróun aðferðafræði fyrir D365 innleiðingar sem samræmist Microsoft Success by Design
- Mikil reynsla af Dynamics 365 F&O, Dynamics 365 Customer Engagement, Dataverse, Power Platform, Azure og Copilot Studio
- Samskipti við þróunardeildir Microsoft í tuttugu ár
- Gagnavernd og rekjanleiki í regluvæddum geirum, einkum GDPR kröfur í bílaiðnaði
- Stjórnun dreifðra þróunar- og arkitektateyma, samráðsdrifið hönnunarferli þar sem teymin eiga útkomuna
Um nafnið
Um nafnið Hugdrif
Hugmyndir einar og sér koma engu í verk. Arkitektúr er drifið milli ætlunar og framkvæmdar.