Hugdrif
EN / IS

Óháð ráðgjöf í heildarskipulagi og lausnaarkitektúr

Stefnan er skýr
Kerfin fylgja ekki með

Kerfi fylgja ekki stefnu, þau fylgja viðskiptagetu, ferlum og gögnum. Ég festi þetta niður svo ákvarðanir um tæknilausnir og gervigreind standist skoðun eftir fimm ár.

Ræðum stöðuna Svona vinn ég
Hvað ég geri

Vandamál koma ekki flokkuð. Gervigreindarverkefni strandar á óskjalfestum ferlum; ákvörðun um hugbúnaðarpall reynist snúast um hver eigi gögnin.

Heildarskipulag og verkferli

Kortlagning rekstrargetu, arkitektúrlög og ferlalýsingar í BPMN: skýr, samræmd og viðhaldanleg.

Lesa meira
Gögn og upplýsingaarkitektúr

Ein samræmd og samþykkt mynd af kjarnaupplýsingum starfseminnar.

Lesa meira
Viðbúnaður fyrir gervigreind og erindreka

Heiðarlegt mat á því hvar starfsemin getur óhætt beitt erindrekum, og hvað þarf að vera í lagi fyrst.

Lesa meira
Lausnir, pallar og rýni

Rétt ákvörðun um hugbúnaðarpall, og óháður lestur á hönnun eða tilboði áður en það verður óafturkræft.

Lesa meira

Viðvarandi samstarf

Yfirarkitekt í hlutastarfi

Sum verkefni enda á ákvörðun. Önnur þurfa einhvern sem heldur samhenginu á milli þeirra. Skilgreind viðvera í hverjum mánuði, þátttaka þar sem ákvarðanir eru teknar, og leiðsögn fyrir ykkar eigið fólk. Markmiðið er að verða óþarfur.

Lesa meira
Fyrir hverja
Stór fyrirtæki og samstæður

Umbreytingarverkefni, kerfisval og ferli sem þarf að ná utan um áður en næsta kerfi er keypt.

Ríki og sveitarfélög

Óháð ráðgjöf sem lifir útboðið af, kröfulýsingar byggðar á viðskiptagetu, og arkitektúr sem næsti hópur getur erft.

Hugbúnaðarhús og samstarfsaðilar

Vöruarkitektúr, vegvísir og þróunarumsýsla frá arkitekt sem hefur borið ábyrgð á öllu þessu sjálfur.

Hvers vegna röðin skiptir máli

Umbreytingarverkefni stranda sjaldan vegna þess að röng lausn var valin. Rót vandans er oftar sú að enginn skilgreindi hvað starfsemin gerir, hvernig hún gerir það og á hvaða upplýsingum hún byggir, áður en lausnin var valin. Arkitektúrinn verður þá eftiráskýring á innleiðingunni og allar ákvarðanir í kjölfarið byggja á villandi grunni sem ekki endurspeglar raunverulegar þarfir.

Þetta var viðráðanlegt á meðan notendur kerfisins voru eingöngu fólk, því fólk leiðréttir sjálfkrafa; það skilur hvenær leiðbeiningar eru úreltar og hagar sér eftir því. Erindrekar skilja ekki. Þeir vinna samkvæmt þeim orðaforða sem þeim er fenginn og leysa ósamræmi með ágiskun, sem getur undið hratt upp á sig.

Vinnan sem virtist valkvæð, að skilgreina ferli, forgangsraða og koma sér saman um merkingu hugtaka, bar alltaf uppi það sem á eftir kom. Gervigreindin afnam svigrúmið til að láta sem svo væri ekki.

Er stór ákvörðun framundan eða verkefnið ekki að ganga nógu vel?

Hljómar eitthvað af þessu kunnuglega: ERP- eða CRM-ákvörðun sem þarf að taka og greiningin hingað til kemur frá söluaðilum. Innleiðing sem skilar ekki því sem lofað var. Þið eruð að fara af stað með stórt verkefni og viljið að grunnurinn sé réttur frá byrjun. Grunngögn í þremur kerfum sem passa ekki saman. Stjórn sem spyr hvað þið séuð að gera í gervigreind.

Fyrsta samtalið kostar ekkert og getur hjálpað til við að móta spurninguna.

Hafa samband