Þjónusta
Arkitektúrráðgjöf í áskrift
Samfella í stefnu og ákvörðunum.
Á við þegar
- Þið þurfið reynslu arkitekts reglulega, en ekki á hverjum degi
- Innanhússteymi er hæft en skortir reynslu af stærri ákvörðunum
- Arkitektúrákvarðanir eru teknar af þeim sem talar hæst
- Hvert verkefni tekur staðbundið skynsamlegar ákvarðanir sem saman mynda ósamstæða heild
Vandinn
Stóru ákvarðanirnar koma sjaldan allar í einu. Þær dreifast yfir árið og hver þeirra byggir á þeirri síðustu.
Með reglulegri aðkomu arkitekts sem þekkir starfsemina og tæknina haldast ákvarðanir í samhengi. Ég fylgi málum eftir, held utan um heildarmyndina og undirbý og rýni stefnumótandi ákvarðanir með ykkur. Hugdrif selur hvorki hugbúnaðarleyfi né innleiðingu og þiggur engar þóknanir fyrir sölu eða tilvísanir, svo ráðin taka alltaf mið af ykkar hagsmunum.
Samstarfið er sniðið að þörfum ykkar. Þannig verður til þekking og samfella yfir tíma, án þess að þið þurfið að ráða sérfræðing í slíkt hlutverk. Ef þið viljið byggja upp eigin arkitektúrgetu er yfirfærsla til ykkar fólks hluti af samkomulaginu frá byrjun.
Hvernig þetta virkar
Skilgreind viðvera
Að jafnaði einn til nokkrir dagar í mánuði, umsamið fyrirfram, með fastri þátttöku á þeim vettvangi þar sem ákvarðanir eru teknar.
Samfella í samhengi
Ráðgjöfin byggir upp heildstæða mynd í stað þess að byrja upp á nýtt í hvert sinn. Ég veit hvers vegna fyrri ákvörðunin var tekin og hvað hefur breyst síðan.
Hlutverkið lagar sig að því sem vantar
Stundum er það ákvörðunarvald í stýrihópi. Stundum leiðsögn fyrir teymi sem hefur getuna en kannski ekki reynsluna. Stundum einfaldlega einhver til að rökræða við, sem hefur séð sambærilega hluti áður og hefur enga ástæðu til að vera sammála.
Aðgengi á milli funda
Stuttar spurningar fá stutt svör, án þess að reisa þurfi nýtt verkefni utan um þær. Það er oft það sem skiptir mestu í reynd.
Yfirfærsla frá byrjun
Innanhússarkitektar eru þjálfaðir samhliða og yfirfærsluáætlun er hluti af samkomulaginu frá byrjun, ekki eftiráhugsun. Markmiðið er teymi sem stendur undir hlutverkinu sjálft.
Það sem þið fáið
- Skilgreind mánaðarleg skuldbinding með umsaminni viðveru og aðgengi
- Þátttaka í arkitektúrstýringu og hönnunarráði, með ákvörðunarvaldi eða ráðgefandi eftir samkomulagi
- Arkitektúrákvarðanir skjalfestar með rökum, ekki bara niðurstöðu
- Leiðsögn og þróun innanhússarkitekta, sem er yfirleitt raunverulega markmiðið
- Yfirfærsluáætlun með tímamörkum
Fyrirkomulag
Við semjum um fastan fjölda daga í mánuði eftir þörfum og umfangi verkefna, til dæmis einn til fjóra daga, eða fleiri á meðan stórt verkefni stendur yfir. Samið er til nokkurra mánaða eða árs í senn.
Dagskráin er ákveðin í sameiningu og getur meðal annars tekið til stefnumótunar, yfirferðar arkitektúrákvarðana, þátttöku í fundum og eftirfylgni. Fyrirkomulagið er fyrirsjáanlegt en jafnframt sveigjanlegt, þannig að aðkoman nýtist þar sem hennar er mest þörf.
Umfang
Léttur samningur
Einn dagur í mánuði. Þátttaka í einum stýrihóp og aðgengi á milli.
Venjulegur samningur
Tveir til fjórir dagar í mánuði. Þátttaka í ákvörðunum, leiðsögn og skjalfesting.
Átaksverkefni
Þyngri viðvera á meðan tiltekið verkefni stendur, léttist svo aftur.
Tengt
Skýr mynd af því hvar starfsemin stendur, hvert hún þarf að fara og hvaða ferli tengja þetta tvennt við daglega vinnu.
Lesa meira Gögn og upplýsingaarkitektúrEin samþykkt mynd af kjarnaupplýsingum starfseminnar og leið að henni sem krefst þess ekki að öllu sé skipt út.
Lesa meira Viðbúnaður fyrir gervigreind og erindrekaHeiðarlegt mat á því hvar starfsemin getur óhætt beitt erindrekum og hvað þarf að vera í lagi fyrst.
Lesa meira Kerfisval, útboð og rýniÓháð rýni áður en skrifað er undir, svo kerfisákvarðanir standist til lengri tíma.
Lesa meiraÁ þetta við hjá ykkur?
Hver er staðan hjá ykkur? Fyrsta samtalið kostar ekkert og skilar oftast því að spurningin verður skýrari, hvort sem framhaldið verður að verkefni eða ekki.
Hafa samband